Þak á húsi er sem hattur á höfði. Vörn gegn verði og vindum og stundum stolt síns eiganda. Það er alltaf betra að hafa þök í góðu ástandi. Þegar ástand þaks er bágt má búast við leka, sem aftur leiðir til þess að leki veldur raka, vatnstjóni og myglu.

Gott viðhald að þaki felst í því að hirða vel um það. Ef járn er á þakinu þá þarf að koma í veg fyrir að það ryðgi og önnur efni láti á sjá.

Bestinhouse er með mikla og langa reynslu af að gera við þök og skipta um klæðningar á þeim.

Ef þakið þarfnast viðgerðar er ekki úr vegi að hafa samband við okkur.
Við höfum mikla þekkingu og reynslu í að þétta þök með réttum efnum sem oft dugar lengi því það er ekki nauðsynlegt að skipta um þakrefni ef tilefnið er ekki ærið.
Við höfum efnin, tækin og verkfærin til að takast á við þakvinnu.
Ef þakklæðningin er orðin léleg getum við skipt henni út.
Ef loftræstingin í þakinu er í slæmu ástandi getum við aðstoðað við að bæta úr.
Ef kemur að því að mála þakið, þá höfum við fagmenn til verksins.
Við háþrýstiþvoum þök og málum með viðurkenndum efnum.
Við tökum að okkur allt sem tengist þökum, skipta út öllu þakinu, sperrum og klæðningu og endur byggja þau. Gera við það sem hefur gefið sig og skipta um klæðningu, laga sperrur og loftræstingu og allt það sem gera þarf til að gefa þakinu nýtt „líf“ og líta út eins og nýtt.

Myndbönd

Myndasafn

Hafðu samband við okkur

Tilbúinn/n að byrja? Notið tengiliðseyðublaðið til að láta okkur vita af þörfum ykkar og við höfum samband með sérsniðna áætlun